Fullt af bulli
vert að skoða ;)
Leitarbox

Síðast inni
Ég var síðast inni þann 24 maí
24.05.2009 23:34:12 / hlinsig

Gott að vera barn í dag :)

Ég held að það hljóti að vera notalegt að vera lítið saklaust og áhyggjulaust barn í dag. Þó börn hafa gott af því að vita líka hvað er að gerast í heiminum og hvernig fjármál þjóðarinnar og flestra fjölskyldna í dag þá má heldur ekki fara of djúp í þetta. María kom til mín um daginn og var e-ð að ræða hvað það væri leiðinlegt að allt kostaði svona mikla peninga, og hún kom með góða laus, " sko mamma það sem mér þætti æðislegt er ef það koastaði bara allt eina krónu og maður fengi alltaf 100 kall til baka :p heheh ef lífið væri svo auðvelt.
Ég veit ekki mikið hvað ég ætti að krota hérna niður, þegar andinn leggst yfir mig og mig langar geggjað að blogg og er með fullan hausinn þá er Vilhjálmur oftast vakandi og þá kem ég þessu ekki frá mér og svo þegar hann sefur þá er ég búin að gleyma öllu.

Æji krapp en andinn er fjarverandi núna ..... reyni aftur seinna og vonandi gengur þá betur. Hafið það gott þar til þá

kv Dagbjört

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2009 22:15:18 / hlinsig

Eurovision ....og allt annað

... alveg er ég viss um að við vinnum núna euróið og það verður til þess að þjóðin fara endanlega á hausinn !!
Ást mín á Íslandi er gríðarlega mikil og er þetta eini staðurinn í heiminn sem ég vil búa á og ala upp börnin mín, en undanfarið er það alltaf að sækjast að manni fastar og fastar að flýgja þessa vitleysu sem er hér orðið á þessu fallega og yndislega landi. Matarkarfan hefur eflaust hækkað um ca 50 % frá því í fyrrasumar, launin hafa lækkað og þó maður borgi endalaust af skuldunum sínum þá hækka skuldirnar og hækka!!
Ný kjörin ríkisstjórn kemur ekki til með að gera mikið fyrir fjölskyldurnar í landinu líkt og þeir eru endalaust að lofa, nú þegar er verið að tala um hvað það á að hækka skatta á sykurvörur og setja einhverj helv.. bensínskatta er þetta að verja heimilin EINMITT, af hverju má ekki frekar greiðar meiri niðru tannlæknakostnaðinn því fólk hættir ekki að kaupa sælgæti og gos þó það verði dýrari .. minnkar eflaust en hættir ekki og hvað afleiðingar hefur það í för með sér minni veltu fyrir fyrirtæki sem framleiða gos og sælgæti á Íslandi og þau fyrirtæki sem flytja inn sælgæti og ekki er það nú jákvætt þegar það minnkar sala hjá þeim ! og er það ríkisstjórnin sem er núna við völd sem sem sagði að það yrði að koma stjórn landsins frá sem var við völdin þegar allt hrundi þau höfðu tæplega 100 daga til að reyna að gera e-ð fyrir landsmenn en hvað var gert á þessum hundrað dögum EKKERT !
Annað sem mér þykir einnig mjög fyndið að íslendingar haldi það virkilega að það lagist allt við upptöku evrunnar !! WHAT ... fyrir það fyrsta þá þurfum við að uppfylla gríðarlega ströng skilyrði til að fá að skipta um gjaldmiðil og við erum eins langt frá því og sólin er fjarri okkur !!
Ég tel að gjaldeyrishöftin eigi eftir að vera hér á landi í ca 5-6 ár á viðbót og hlutirnir verða farnir að lagast hérna í kringum 2016 eða 17 svo tímarnir eru nú ekkert svakalega bjartsýnir framundan en maður reynir eins og maður getur að vera jákvæður og láta þeta ekki hafa áhrif á sig.
Á svona tímum líkt og við erum að upplifa er margs sem þarf að gæta í þjóðfélaginu líkt og ekki má skera niður í heilbrigðiskerfinu og alls ekki þá hvað kemur að geðdeildum á landinu því það er einmitt á svona tíma sem fólk sem er veikara fyrir þarf á meiri umönnun að halda, menntakerfið má ekki skerða því það verður að vera hægt að mennta unga fólkið í landinu svo við fáum kannski einn daginn hæft fólk í það að stýra landinu okkur og þá ekki einhvern sem er sonur Davíðs Oddsonar eða frændi, og skyldimenni þeirra sem hafa verið hér við völdin undanfarna áratugi. Það er endalaust talað um það hvað atvinnuhjólin verða að snúast áfram og gæta þessa að bankakerfið haldist gangandi og það að fyrirtæki landsins skuli ekki reyna að frekar að sjá til þess að faglært fólk hér á landi fái vinnuna heldur en einhverjir útlendingar líkt og Icelandair er að gera ... ræður flugmenn til sín sem hafa ekki einu sinni réttindi til að fljúga í evrópu og eru þeir ráðnir því það er hægt að greiða þeim lægri laun ... ég verð alveg brjál þegar ég heyri svona vitleysu. Annað sem þarf að gæta alveg sérstaklega á svona tímum og það er börnin okkar, það þarf að passa að þau geti áfram sótt þá tómstundir sem þau eru vön að sækja og að félagsmiðstöðvar séu opnar til þess að þau geti leitað til einhverra því núna fara flestir foreldrar að auka við sig vinnuna svo hægt sé að sjá fram úr skuldasúpum heimilinna ..... úfff jæja ég hugsa að ég láti þetta duga í bili !

kv Dagbjört sem bloggaði um allt annað en þetta átti að vera um :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2009 11:08:57 / hlinsig

Sunnudagur til sælu

Ég elska sunnudagsmorgna veit ekki alveg af hverju en bara geri það, þó ég þoli ekki að það þýði að helgin sé á enda, en svona er maður sktrítinn :)
Þessa dagana er Halli að læra endalaust og er því ekki gert mjög mikið, en þetta rugl er að verð að búið hann klárar skólann núna í júní og þá tekur við að safna flugtímum svo hann geti tekið atvinnuflugmannsprófið og það verður vonandi í ágúst.

Ég kíkti uppí hesthús til Stínu í gær því það getur verið að ég eignist eitt stykk hest núna á næstunni, því þannig er að henni var gefinn hestur og hún er spá í að gefa mér hann ef mér líkar hann :haha: hann heitir Piltur og er 6 vetra, ég er náttúrlega alveg að farast úr spenningi því þetta er búið að vera eitt af mínu heittustu óskum jaaa síðan ég var unglinur :lol: en svo er bara að vona að þetta gangi upp allt saman.

Það er heldur betur komið vor í krakkana því þau sjást varla inni orðið og er talið niður þar til skólanum líkur hjá þeim í júní og að halda þeim inn núna til að læra heimanámið er aðeins meira en að segja það !

kv í bili Dagbjört

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2009 22:25:02 / hlinsig

Ætti maður að byrja aftur

Var að spá hvort ég ætti að byrja aftur að blogga hérna inn. Var alveg að farast þegar allt hrundi í haust að blogg endalaust því ég var að spring ég þurfti svo að tjá mig, en svo var bara aldrei tími til þess.
En ég get nú enn tjáð mig e-ð um ýmis mál.
Núna á kosningardaginn áttaði ég mig á því, að ef komandi ríkisstjórn heldur út þetta kjörtímabil (sem ég reyndar hef enga trú á) þá má sonur minn kjósa 8| það er náttúrlega bara rugl sko !!!
En ég ætla að sjá hvort það sé eitthvað vit í því að blogg hérna og sjá hvort það komi einhver komment ;)

kv Dagga

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 10:38:28 / hlinsig

20 vikna sónarinn búinn

Á mánudaginn vorum við í sónar og vá hvað þetta er alltaf jafn gaman og æðislegt, krílið hreyfði sig alveg á milljón og var sko ekki alveg á því að vera láta pota svona í sig 
En skoðunin gekk mjög vel og allt var á sínum stað og virkaði eins og á að gera. Ég og Halli vildum fá að vita kynið og krílið var sko ekkert feimið þannig við sáum það greinilega og við eigum von á litlum prins í janúar :haha: 
Það náðustu æðislegar myndir af honum sem voru rosalega skýrar. Mamma og tengdó komu með okkur í sónar og voru náttúrlega alveg í skýjunum með þetta allt saman. 
Langaði bara að henda þessu inn hérna fyrir þá sem les enn þessa síðu.

kv Dagbjört 

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 17:27:24 / hlinsig

Gamla góða....

.... rútínan er tekin við sem betur fer segi ég nú bara .... María þolir ekki svona langt frí greinileg, enda í byrjun ágúst var henni farið að hlakka til að fara í skólann.  En það eru allir komnir á sinn stað í vetur nema Halli skólinn hjá honum byrjar ekki fyrr en í næstu viku. 
En af mér er það að frétta að ég er komin niður í 50 % vinnu þar sem ég er búin að vera svo mikla samdrætti eftir að við komum heim frá Spáni þannig ég ætla að byrja á þessu og sjá hvort það lagist ekki eða allaveg minnki vel. 
Mig er farið að hlakka alveg svakalega mikið til jólanna og núna get ég heldur betur notið þeirra og undirbúningsins almennilega þar sem það eru engin próf hjá mér þetta árið og ég verð hætt að vinna því ég vinn bara út október.

Það er varla að ég þori að setja þetta hérna inn en við skelltum okkur  norður síðustu helgi (Inga kálar mér núna ) með fellihýsið og tengdó tók tjaldvagninn sinn og vorum saman í útilegu en náttúrlega líka í heimsókn hjá Sæunni systir Halla, þetta var ferlega kósý og róleg helgi bara spjallað og spjallað og náttúrlega kíkti ég í Jólagarðinn því ég elska það hús og VARÐ að kaupa mér smá skraut hehehe..... 

Jæja ég nenni ekki meiri í bili.
kv Dadda með bumbuna  

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 09:21:57 / hlinsig

Smá update

Í gær fórum við aftur í skoðun því fyrir tveimur vikum var ég komin of stutt til að hlusta á hjartsláttinn, og núna hittum við ljósuna sem fylgir okkur út meðgönguna og hún er æði :þ
Ég lagðist á bekkinn og hún varar okkur við að það geti verið erfitt að ná hjartslættinum því ég sé ekki komin lengra en rúmar 12 vikur ... en hún var varla búin að leggja tækið á magann þegar kemur þessi líka svaka kröftugur hjartsláttur 170 slög takk fyrir :d og allt yndislegt .. við Halli alveg í skýjunum en ekki hvað :haha:

Svo tók Halli í gær flugprófið þannig núna á bara prófdómari frá flugumferðastjórn eftir að fljúga með honum og þá er kallinn orðinn einkaflugmaður :d yndislegt alveg hreint

Máni er í Vatnaskógi núna fór í gærmorgun og verður fram á þriðjudagskvöld 8| þannig hann verður heima í einn dag svo er það útlöndin :lol:
Svo er stóri sæti strákurinn minn að koma heim á morgun í frí og verður hjá okkur lengi lengi ... jeijjj yndislegt alveg hreint.

Jæja best að vinna .. en tölvukerfið liggur niðri þannig það er ekki hægt að gera neitt ;)

kv Dadda padda

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 16:56:01 / hlinsig

Nýjustu fréttir

Krakkarnir eru loksins að koma heim á eftir eða Máni og Mæja en Darri verðru áfram uppfrá því hann er víst fluttur þangað 8| en hann kemur í næstu viku og verður hjá okkur í 4 vikur ;) það verður yndislegt ... núna eru bara 2 vikur í útlandaferðina okkar :haha:

En já að fyrirsögninni sem sagt nýjustu fréttunum, en þær eru þær að við eigum von á litlu kríli í janúar og erum komin núna um 12 vikur áætlaður komudagur krílisins er 24 jan já já þannig núna er maður að ganga með fjórða krílið sitt sem er yndislegt og það er svo mikil tilhlökkun á þessum bæ. Mæja vill að þetta verði stelpa því eins og hún segir sjálf þá finnst henni ósanngjarnt að strákarnir eigi bara systir en ekki hún ... hún er yndisleg :haha: strákarnir vilja að þetta sé strákur og verði skírður Kristófer Máni ... já einmitt strákar mínir ... en þið sem viljið fylgjast með krílasögunni þá er búið að búa til síðu á barnalandi og síðan er .... http://barnaland.is/barn/73479/  og þið bara sendið mér línu til að fá aðganginn ;)
En alla vega þá er ég búin að koma fréttunum frá mér .. og úff hvað það var æðislegt er búin að eiga mjög bágt með að þegja í þessar 8 vikur sem við höfum vitað þetta ;)

Síðustu helgi skelltum við okkur í útilegu á Þingvelli með Ingu syss, Hlyni, Sigga og Brynju Björt og með okkur í för slóst Kristján, Kolla, Írena og Natalía og vá hvað það var yndislegt hefði bara vilja hafa mína krakka líka :cry: en þau koma með næst :) en við ætlum okkur að fara með þau inn í Þórsmörk og fara yfir árnar fyrir Mána og hvað hann getur ekki beðið eftir því ... bíladellu kallinn minn.

jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili.

kv Dadda litla

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 11:54:01 / hlinsig

Kominn tími á blogg

Eiginlega ætlaði ég að vera löngu búin að krota e-ð hérna niður ...en svona er maður. Útskriftin var meiriháttar, og vá hvað tilfinningin var geggjuð þegar nafnið mitt var lesið upp og ég gegg á svið og sótti plaggið mitt :) útskirftin gekk furðuvel fyrir sig tók ekki nema tvo klukkutíma þó það væri 422 að útskriftast, en hópurinn allur var mættur kl 10 um morguninn til að fara í myndatökur og svo var tekin ein MJÖG stutt æfing og svo var það stóra stundin.
Eftir útskriftina fórum við familyan og mamma og pabbi, Inga syss og Brynja Björt og tengdamamma í Perluna og fengum okkur gott að eta, því veisluna var ég svo með 16 júní mánudaginn eftir og ástæðan fyrir því er að Darri var í útlöndum með pabba sínum og konunni hans og var það ferðin sem hann fékk í ferminagjöf frá þeim en hann kom svo heim um miðjan dag 16 júní og ég vildi náttúrlega hafa hann með í veislunni..... veislan var róleg og fín  bara svona nánast fjölskyldan og ég fékk margar æðislegar gjafir ;) tengdamamma gaf mér hring sem mamma hennar átti og ég bara fór næstum að grenja þegar ég opnaði pakkan, svo fékk ég líka lukkusteina fyrir okkur og svona krúttí dót frá henni, ég fékk alveg fullt fullt meira ... nenni ekki að telja það allt upp hérna.

17 júní var frábær við vorum komin niður á Rútstún rétt yfir eitt með teppi og kósýheit, þegar við vorum orðin pirruð á hvernig barnaskemmtiatriðin voru stóðum við upp og fórum með Mæju í röð í hin ýmsu tæki og til að láta mála prinsessuna í framan, það fylgir þessu bara ;) ... strákarnir voru bara þarna og léku lausum hala, þegar allir voru komnir með nóg af því að veltast á milli 16 þúsund manns fórum við í bíltúr og rúlluðum við á Pottinum og Pönnunni og fengum e-ð gott í gogginn... rúlluðum upp í Miðdal og Máni og Halli fóru og lék sér með rafmagnsbátinn hans Mána á Leirtjörn og Darri og Mæja voru að leika sér á vatnsrennibrautadótinu (eins og krakkarnir kalla það) fórum svo bara heim og sofnuðum fljótlega.
Núna eru krakkarnir hjá pabba sínum og eru búin að vera þar síðan 18 júní og kom heim 9 júlí ... ég ætla nú samt að stela þeim á sunnudaginn og fara með þau í afmæli til Brynju Bjartar mýslin er að verða 5 ára .. ótrúlegt hvað tíminn líður hratt ... en jæja best að fara gera e-ð ... kem með fréttir af útileguferðinni okkar Halla seinni .. en við fórum inní Þórsmörk sem var geggjað gaman ;)

later
Dadda padda

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 14:49:48 / hlinsig

Útskrift bara ekki morgun heldur hinn ;)

Þá er komið að því, stóra stundin min er að renna upp... ég er að fara útskrifast á laugardaginn með B.Sc í Viðskiptafræði af markaðsfræðisviði og hana nú !!... en ég stuttu máli þá er ég orðin Viðskipttafræðingur .. sem er alveg þokkalega góð tilfinning ;)

Veisluna ætla ég svo að vera með á mánudaginn því þá er Darri kominn frá Spáni og getur verið með í veislunni.
Á 17 júní verða krakkarnir loksins hjá okkur ég hef ekki haft þau hjá mér á 17 júní síðan 2005 !!! svo eru þau farin í 3 vikur til pabba síns :( en það líður hratt svo eftir það er komið að Spánar ferðinni okkar eða í lok júli reyndar er hún en svaka tilhlökkun hjá okkur öllum. Við ætlum að vera í tvær vikur núna og heimsækja líka Heidi frænku sem er bara rétt hjá Costa del sol.
Ég ætlaði nú aðallega að monta mig á því að ég væri að fara útskrifast ;) .... kom svo með e-ð eftir útskrfit, veislu og 17 júní ;)

kv Dadda litla

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 21:35:48 / hlinsig

Myndir

Ég var að henda inn nokkrum nýjum myndum ... var reyndar búin að setja alveg billjón myndir en það mistókst e-ð nenni ekki aftur strax... en þetta eru nokkrar myndir úr brúðkaupinu....

besssssssssssss

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 20:13:14 / hlinsig

Fullt að frétta :)

Þessir dagar hafa verið frekar erfiðir ... þar sem Darrinn minn ætlar að prófa að búa hjá pabba sínum allavega einn vetur og fer til hans í júní ... og þetta er að rífa úr mér hjartað, líður svo illa þegar ég hugsa til þess að hafa hann ekki hjá mér og ég get ekki verið hjá honum þegar honum líður illa :( En vonum bara það best :)

Svo er það annað ég er búin að ná öllum prófunum 5 sem ég tók núna og maður þá orðin Viðskiptafræðingur ...jahérnahér ... en vá hvað þetta var yndisleg tilfinningin þegar ég kíkti á einkunnirnar í morgun því ég eiginlega bjóst við því að ég hafi fallið í þessu prófi en nei nei ég fékk 8,5 takk fyrir, þokkalega sátt við það ;) ...núna er ég líka að fá spennufall þessa dagana þar sem ég er bara endalaust þreytt ... gæti sofið allan daginn.

Svo er Halli alveg að vera búinn með einkaflugmanninn .. kannski við bara sláum upp eina veislu fyrir viðskiptafræðinginn og einkaflugmanninn ;)

jæja læt þetta duga í bili.

Dadda litla viðskiptafræðingur

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 09:14:05 / hlinsig

Ekkert að frétta !!

Jæja þá er víst komið sumar samkvæmt íslensku dagatali, og ótúrlegt en satt þá hefur sólin bara verið að glenna sig síðustu daga :)
Við ákváðum að renna í " sveitina"  eða uppí Miðdal sem sagt á miðvikudaginn strax eftir vinnu og gistum þar með tengdó. Áttum alveg æðislegt kvöld með krökkunum, tengdó, Tryggva og Jóhönnu við arinn eldinn.
Við vöknuðum eldsnemma og fórum að taka til í garðinum raka laufin, og tæta afklippurnar af trjánum sem er búið að snyrta, tíminn leið ótrúlega hratt og strax komið hádegi ! .... þannig þá var tími kominn á að grilla pylsur og sitja í sólinni ... það var sko geggjað veður og það er svo mikið af trájm þarna að það var næstum alveg stillt veðrið .. enda er maður kominn með nokkrar freknur.
Það er svo yndislegt að vera þarna að við Halli erum eiginlega aftur komin á það að byggja þarna okkar framtíðarheimili, því nóg á tengdó af landi þarna sem hægt er að búa á. Þetta er yndisleg paradís stutt frá bænum en ekki þetta endalausa áreiti og stress eins hér í borg óttans og erum við eiginlega bara alveg komin með ógeð á því og viljum því flytja uppí Miðdal og krökkunum þykir það æði.
Það er nóg að gera um helgina, við ætlum á árshátíð hjá Spron á Hilton/Nordica og leigðum okkur þar herbergi og ætlum svo á nýta brúðagjöfina frá Unnari og fá okkur brunch á Vox á sunnudaginn. Svo á sæti minn afmæli á laugardaginn og við eins árs trúlofunarafmæli á sunnudaginn, við erum svo að spá í að vera með léttan kvöldverð hérna á sunnudaginn í tilefni að afmælinu hans Halla.
Svo er núna bara eitt próf eftir og er það 13 maí, ég er búin að fá úr tveimur fögum og náði þeim þannig núna er bara að krossa fingur og vona það besta með hin þannig ég nái nú vonandi að útskrifast í júní ... það verður yndisleg tilfinning.

Jæja læt þetta duga í bili..
later dúdds og njótið helgarinnar ..... I know I will ;)

Dadda litla

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 16:27:55 / hlinsig

Önnur tilraun

Jæja best að reyna aftur að skrifa e-ð hérna.

Síðustu vikur hafa verið frekar klikk og verða það áfram eða til 13 maí en þá eru prófin búin :) jahúúúúú
Þá getum við farið í útilegur hverja helgi og haft gaman ;) hlakka svo til, við ætlum einmitt að sækja fellihýsið á morgun. Ég var í prófi í morgun og hef ekki hugmynd um hvernig það gekk enda verður það allt helv.... að koma í ljós. Núna er ég bara aðeins að njóta þessa að vera löt á náttúrlega að vera að læra en stundum bara fær maður ógeð en það er svo notarlegt að letast ég er ein heima :) krakkarnir eru hjá pabba sínum og Halli er í flugtíma.

Í kvöld ætlum við skvísurnar svo aðeins að skvetta úr klaufunum .... við skvísurnar úr pepp og svepp hehehe við sem djömmuðum sem mest saman ja svona 2004 2005 og 2006 heheh úfff hvað það var gaman hjá okkur. Við ætlum að byrja á að fá okkur e-ð í svanginn og kíkja svo á djammið ;) veit ekki hvort ég hafi orku í því en það kemur í ljós.

Við erum enn að bíða eftir að litla krílið hjá Eddu og Jóni komi í heiminn en krakka ormurinn er heldur betur að láta bíða eftir sér því það átti að fæðast fyrir viku síðan og meiri en það, við Halli fórum meira að segja á miðvikudaginn í Smáralind til að kaupa sængurgjöfina og vorum að vonast til þess að það mydni koma af stað fæðingu en held að virki öfugt !. Svo í vikunni fengum við að vita það að litla krílið hjá Þorra og Rögnu er lítill strákur :haha: það er æðislegt þannig núna eru barnabörnin hjá mömmu og pabba sem eru að mestum hluta  strákar næstum jafn mörg og heilt fótboltalið hehe...

æji ég nenni ekki meiri núna ... later dúdds

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 21:04:27 / hlinsig

Vorið er komið og gundirnar gróa hehe

Núna líður mér eins og belju í fjósi sem þarf að komast út eftir heilan vetur fasta í fjósi ... því núna sit ég inni alla daga að vinna, öll kvöld og allar helgar að læra, en vonandi er þetta síðasta skiptið sem ég þarf að læra fyrir próf þar til ég tek masterinn ! Ég skal útskrifast í vor ... ég neita því ekki ég er orðin helv þreytt á kvöldin þegar ég leggst upp í rúm, en það þýðir ekki að væla yfir því, ef maður ætlar sér e-ð þá kostar það sitt !

Í dag vorum við í afmæli hjá Þorra og loksins gátum við gefið honum það sem við keyptum handa honum í janúar á Flórída og það var Svarthöfða dótafartölvu :D .. held að peyjinn hafi verið alveg þokkalega ánægður með ;)
Svo þessa dagana bíðum við spennt eftri því að litla krílið hjá Eddu og Jóni komi í heiminn :)

jæja ég nenni ekki miklu meiri ... ekkert blogg stuð í gangi núna

over and out !

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Heimsóknir
Í dag:  20  Alls: 57689
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1296 dögum
Familyan til Spánar